Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

The last one...

02. desember 2008 klukkan 11:29
Þá er kominn tími fyrir mig að þakka pent fyrir öll komment og heimsóknir á þetta blogg. Nenni ekki að blogga lengur. Fyrir utan það, þá er blogg eitthvað svooo 2006-2007 eitthvað...Wink

leiter....

nýýý færsla.....

07. nóvember 2008 klukkan 20:23
jú gott fólk...ég er á lífi...
Hef bara ekki nennt að blogga, því tölvan okkar er alveg gjörsamlega að syngja sitt síðasta. Slekkur bara á sér þegar henni hentar og ég  nenni ekki að standa í að blogga þegar hún lætur svoleiðis. Liggur við að ég hafi þurft að fara á hraðritunarnámskeið, til að ná að pikka eina færslu áður en hún slekkur á sér..

Hellingur svosem að frétta...Erfingi númer tvö kominn undir og er væntanlegur í maí 09..
Tuminn okkar fékk líka nýtt heimili, því aðstæður buðu ekki uppá að hafa hann..því miður. en hann fékk frábært heimili..

Nenni ekki að blogga um kreppuna..Ég væri hvorteð er ekki að segja neitt sem fólk myndi ekki vita fyrir...

Stutt, hnitmiðuð og glæný færsla. Stutt, vegna þess að nú eru komnir kippir í tölvuna, og ég finn á mér að nú fer hún að lognast útaf..

Blogga aftur fljótlega pípúl...

Glitnir og Latibær.......Hraustir saman.....

29. september 2008 klukkan 22:57

Er í algjöru blogg-óstuði, eins og sést....Blogga þegar

ég hef frá einhverju að segja....

gull eða silfur?

24. ágúst 2008 klukkan 01:04

Ég er ein af þeim sem þola ekki skipulagða hreyfingu. Semsagt, mér þykja íþróttir leiðinlegar. Bæði að horfa á þær og stunda þær.

Finnst aldrei eins leiðinlegt að hreyfa mig, einsog þegar einhver segir að ég EIGI að hreyfa mig. Ég hrekk í algjöran baklás og neita að færa mig úr stað, þegar einhver skipar mér að gera það í þeim tilgangi að ég sé að stunda hreyfingu mér til heilsubótar. Ef ég skokka, þá fæ ég hlaupasting, ef ég fer í spinning, þá fæ ég harðsperrur, ef ég hætti mér í boltaíþróttir, þá endar það alltaf þannig að ég fæ boltann í andlitið, eða þá að ég meiði einhvern, og þetta allt þykir mér afskaplega leiðinlegt. Ég tók því meðvitaða ákvörðun, fyrir löngu, að stunda þetta ekki. Ég er semsagt ekki ímynd hreystis og heilbrigðis. Ég vill fá að hreyfa mig þegar það hentar mér, en ekki þegar einhver þjálfari segir að ég EIGI að gera það. Það væri heldur ekki gott að vera með mér í liði, því mér er alveg sama þó ég tapi. Ég er ekki tapsár. 

Fótbolti þykir mér verstur. Yfirleitt takur einn leikur alveg alltof langan tíma, og 90% af tímanum gerist voða fátt. Sendingar fram og tilbaka og svoleiðis er ekki hægt að horfa á í nema stutta stund. Þá fer mér að leiðast. Það veit aldrei á gott ef manneskju í tvíburamerki leiðist.....Þá gerast undarlegir hlutir....

 

 

Hinsvegar................

 

Þá ætla ég að vakna fyrir allar aldir í fyrramálið til að horfa á handboltaleik. Ég ætla að hafa það ógó huggó með dóttur minni (Bjöggi fer nefnilega á Salthúsið að horfa á leikinn, en ég er ekki svo langt leidd, þannig að ég verð heima) og horfa á þessa gaura þarna spila handbolta. og ég ætla að gera mitt besta í að halda einbeitingu yfir þessu í heilar 60 mínútur. Ég held reyndar að það verði ekki svo erfitt, eflaust verður þetta þrusu spennandi leikur. Við vonum það allavega.Ullandi

 

pís át, Áfram Ísland og allt það.....

ammælisstelpan...

09. ágúst 2008 klukkan 11:43

Hún Begga mín á afmæli í dag....Til hammó með ammó elskan....

 

 

 

 

þúst..klikkun....

17. júlí 2008 klukkan 20:53

Ég lét langþráðan draum rætast í gær. Búin að ala þennan draum í brjósti mér síðan ég var 14....Eða alveg síðan við Ása horfðum á einhverja mafíumynd, minnir að við höfum verið 14...eða 15....já gott fólk, ég hef lengi þráð að tilheyra Mafíunni...Og nú geri ég það... Mafían er reyndar einungis til á Myspace, og ég er ein í henni, en er búin að bjóða fullt af fólki að vera memmér, svo að það hlýtur að batna.. Mér hefur alltaf (again, síðan ég var 14.) þótt Mafían heillandi. Pælíðí að vera dóttir mafíósa..Það getur ekki verið neitt annað en næs...Og eiga fullt af frændum sem eru algjörir gangsterar, og telja ekki mikið mál að lemja mann og annan...Jafnvel höggva mann og enn annan...

 

"nújæja,  herra Verslunastjóri í BT, hvasigiru, get ég EKKI fengið þetta 42" flatskjársjónvarp á 50.000 slétt??? Best að ég biðji hann frænda minn að kíkja hérna á þig á morgun. Vertu sæll...."

 

Það  þarf enginn að segja mér að þetta yrði ekki næs....Svona í kreppunni....

 

Þangað til fjölsyldunni minni dettur í hug að stofna Mafíu, held ég mig bara við að MAfíósast á MySpace...

 

Held samt að mamma greyjið myndi ekki plumma sig vel. Allar Mafíukonurnar í bíómyndunum, eru alltaf í D&G fötum, stífmálaðar og lakkaðar. Elda aldrei og hvað þá baka. Mamma mín er ósköp indæl kona, sem vinnur í Kirkjulundi og bakar pönnukökur...

 

jæja, ætla að athuga hvort eihver hefur tekið boði mínu og Mafíuaðild..

 

Verið Sæl..

sumarfrííí

01. júlí 2008 klukkan 21:25

jahérna hér...sumarfríið byrjað...Verð í 6 vikur í holiday...Heppin ég Svalur

 

Sumarfríið gat ekki byrjað betur.. Fyrsta deginum fékk ég að eyða með algjörum gullmolum.. Gulla kom í kaffi um 11  og Thelman mín kom um 12 og var allan daginn hjá mér...Þvílíkt æði...Svo um kvöldið þá komu Gulla og Begga mér á óvart og buðu mér út að borða...Algjört æði!!! Ég get svo sannarlega verið lukkuleg með að eiga þær sem vinkonur...Sumir eiga ekki einusinni eina vinkonu...ég fékk 3!!! svo er mar að kvarta að mar sé fátækur Glottandi

 

En allavega, lífið gengur sinn vanagang hér hjá okkur. Loksins sér fyrir endan á þessum framkvæmdum, Flísarinn kemur á morgun að leggja á eldhúsið, þvottahús og forstofu, og málarinn kemur líka á morgun að sparsla, pússa og mála svefnherbergið...Við búum semsagt í stofunni núna... Bjöggi parketleggur svo svefnherbergið í vikunni...og mikið hlakka ég til marh...

 

Kisi litli er bara krúttlegur..Búinn að klóra heimasætuna aðeins, og hún er búin að læra að' það má ALLS EKKI taka kisa upp á skottinu...smá svona byrjendahnökrar...en þau eru bestu vinir og í þessum skrifuðu orðum sefur hann í fanginu á henni uppí rúmi...og finnst það bara notalegt...Hlæjandi

 

jæja, ætla að fara að pilla Tuma úr fanginu á Elísabetu svo hún kremji hann ekki

 

leiter....

þakkarræðan :o)

19. júní 2008 klukkan 23:03
Fyrirgefið hvað þakkarræðan kemur seint, hef bara ekki komist í tölvu sökum anna..

En allavega, þá langaði mig að þakka öllum sem komu og gerðu afmælið mitt frábært...það var alveg magnað að fá ykkur öll...alveg hreint stórkostlegt... og allir pakkarnir marh....shæsi, fékk svooo mikið í afmælisgjöf, var ekki alveg að ná þessu...

reyni að henda inn myndum næst þegar ég gef mér tíma til að fara í tölvuna...

Enn og aftur TAKK HJARTANLEGA FYRIR MIG!!!!

magnaður andskoti

03. júní 2008 klukkan 21:56
alveg hreint magnaður andskoti...

Hvítabjörn skotinn á landinu í dag...Veit ekki alveg hvað ég á að halda um þetta mál...Er nottla algjör dýraelskandi...En er samt ekki einn af þeim kjánum sem halda að öll dýrin í skóginum séu góð og það sé okay að klappa þeim...öllum... Heldur ekki ein af þeim sem heldur að ljón séu  bara ofvaxnir kettir.....og heldur ekki ein af þeim sem stendur í þeirri bjargföstu trú að hvítabjörninn sem mætti í partýið í dag, hafi heitið Bjössi knúsubangsi og hafi verið sendur hingað til íslands til að kynna nýjustu herferð kókakóla....Ég hef nebbla lært að hafa hyggjuvit þegar málið snýst að dýrum.......Ég hélt nebbla einusinni að öll dýr væru góð...og ég mætti alveg klappa þeim...öllum.....Hefði sennilega reynt það líka við Bjössa knúsubangsa frá kókakóla....
En nú veit ég betur....Mikið betur....

Ég æsti mig ekkert lítið við Bjögga þegar við ræddum í mesta bróðerni um hreindýradráp..Finnst það ennþá vera algjört kjaftæði..Aaaaalveg sama þó svo að "það megi bara drepa ákveðið magn af dýrum, svo að stofninn hrynji ekki"  og "þau eru bara skotin undir eftirliti sérfræðings, sem sér til þess að dýrið kveljist nú ekki" eins og Bjöggi reyndi að segja mér þúsund sinnum til að róa mig...

Ég er enn kjáni að því leytinu til, að ég held að flest hreindýr heiti Bambi og séu send hingað til lands frá Walt Disney...

(ég veeeeeit að Bambi var dádýr, en þið fattið hvað ég er að meina)

there's a meistari in the house....

11. maí 2008 klukkan 00:14
Jæja, þá er sumarið dottið inn, búið að smíða sandkassa handa heimasætunni og Björgvin orðinn húsasmíðameistari..Loksins :o)

En að öðru...Það var alveg stórskemmtileg grein í DV í gær... Tískuslys tíunda áratugarins...jesús minn....Ég dauðskammast mín að viðurkenna að af 13 töldum tískuslysum, tók ég þátt í 11....

Klippa upp í buxur: jááá, ég viðurkenni það fúslega, enda var þetta ósköp saklaust. Þó mamma hafi nú oft gargað á mig fyrir að klippa nýjar buxur...
Vaxjakkar: ahh...einhver jólin þá grenjaði ég út svona vaxjakka. Algjör hörmungarflík, og klæddi ekki nokkurn mann vel...
Kraftgallar: jebb, ég man þegar kraftgallinn minn kom í hús. Hamingja hamingja. Og ekki skemmdi að Ella fékk líka....
Dr.Martens skór:uppháir sýruþvegnir hermannaklossar..Mínir voru svartir, keyptir í Amsterdam minnir mig.
Afabolir: Það var inn að vera í afabol..Eins og þetta voru plein bolir, þá var alveg órtúlegt hvað þeir urðu vinsælir.Fengust víst fyrst bara í virðulegustu herrafataverslun landsins, Hjá Guðsteini, en svo datt þetta inn í Mangó og Kóda.
Fila-tískan: Sem þátttakandi í skopparatískunni, þá var möst að vera í Fila, til að toppa lúkkið...með svitabönd og allt..
Stussy: again, ég var þátttakandi í skopparatískunni. Þetta fylgdi því.
Hippamussur: almáttugur...mamma og pabbi keyptu eina svona handa Inga í Amsterdam(gott ef það var ekki í sömu ferð og Dr.Martens skórnir mínir voru keyptir) og svo nottla fékk hann leið á henni, og þá var ég reddí á kantinum að taka við henni.Ég gerðist svo gróf að ég seldi vinkonum mínum aðgang að henni. Kaup kaups. Ef þú biður þennan strák að byrja með mér, þá máttu vera í mussunni minni á morgun. Þið vitið, svona 5-bekkjar-fílingur...
Dickies: það voru virkilega kúl buxur. Draumur hvers búðareiganda. Keyptar á klink frá USA, og seldar á seðla hér. Gulla var svo framúrstefnuleg, að hún var alltaf að breyta sínum, klippti þær í sundur og saumaði pils og allt.
Kafarapeysur: Peysa úr undarlegu efni. Frauðpappa held ég. Virkilega móðins peysur, náðu niðrað mitti, vasar að framan, rennilás í miðjunni og eflaust hægt að kafa í þessu.
Síðast en ekki síst, en sennilega hallærislegast...
Buffalóskór: Sennilega ljótustu skór sem nokkurn tíma hafa verið framleiddir (kannski fyrir utan Art-skóna.) Algjörlega óskiljanlegt með öllu, að þessir skór hafi orðið eins vinsælir eins og þeir urðu.


nenni ekki að blogga meira...
Leiter
Linda.